
HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem ste